Forsíða

Frétt

17.03.2002 00:03 | Áskell Bjarnason

Paul Ince: Ég vona að Liverpool vinni deildina

Þótt svo brotthvarf Paul Ince frá Liverpool á sínum tíma hafi ekkei verið á góðu nótunum þá kveður nú nokkuð við annan tón í dag. Paul Ince var besti maður Middlesborough á laugardaginn þegar okkar menn náðu góðum úrslitum á erfiðum útivelli. Sjálfur fékk Paul tvö ágæt marktækifæri í leiknum en tvö langskot hans fóru rétt framhjá tréverkinu.

Á blaðamannafundinum eftir leikinn sagði hann að "toppbaráttan væri ótrúlega hörð og Man. United, Arsenal og Liverpool ættu öll góða möguleika. Það væri ánægjulegt að sjá titilinn fara aftur á Anfield. Ég er ennþá búsettur í nágreni Liverpool og á marga vini þar. Jamie Redknapp er besti vinur minn og ólíkt stuðningsmönnum Manchester United þá hef ég aldrei þurft að þola lítilsvirðingu frá stuðningsmönnum Liverpool þegar ég hef spilað gegn þeim.
Til baka

Samstarfsaðilar

  • Úrilla górillan
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • VITA
  • Advania
  • Ölgerðin