| SSteinn

Ziege í búningi Liverpool og liverpool.is með allt á hreinu

Við hér á liverpool.is viljum benda Púllurum á Íslandi á þá einföldu staðreynd að liverpool.is var fyrst með fréttirnar af því er Ziege samþykkti tilboð Liverpool og tryggði þannig að Púllarar á Íslandi voru alltaf með framvindu mála hjá Ziege og Liverpool á hreinu á undan öllum öðrum Púllurum.

28. júlí EINSTÖK FRÉTT: Ziege samþykkir tilboð Liverpool
Nú erum við komnir með pottþéttar heimildir þess efnis að Christian Ziege hefur samþykkt launapakkann sem Liverpool bauð honum. Fréttin var skráð kl. 9:46. Við vorum fyrstir allra netmiðla, innlendra sem erlendra.

Berum okkur saman við Koptalk sem eru jafnan fyrstir með fréttirnar varðandi Liverpool.
10th August 2000: Ziege undecided
Liverpool target Christian Ziege is undecided on where his future lies according to Boro boss Bryan Robson. "Christian is still away making up his mind and we´ve not heard anything back from him," said the Manc.
Koptalk segir að Robson segir að Christian sé ekki enn búinn að gera upp hug sinn og gerir enga athugasemd við þessi ummæli hans enda vissu þeir ekki betur frekar en aðrir netmiðlar á Bretlandi. liverpool.is hafði ekki áhyggjur af þessu enda 11 DÖGUM ÁÐUR birtum við þessa frétt:

31.07:
Robson lifir í draumaveröld. Talaði við minn mann í morgun og er staðan sú sama:
1) Ziege vill fara til Liverpool. Búinn að samþykkja launamál og hvaðeina.
2) Middlesbro er að reyna að fá Liverpool til að borga meira en 5.5, líkleg niðurstaða 6-7 milljónir.
3) Gengur líklega í gegn í dag eða á morgun, Ziege er enn í Þýskalandi og hitti Houllier á Freiburg leiknum til að hnýta lausa enda eins og húsnæði, tryggingar o.s.frv. ásamt umboðsmönnum sínum, m.a. mínum manni. Þið Liverpool menn þurfið ekki að hafa frekari áhyggjur af þessu, Ziege er orðinn ykkar."
[Allir vita nú hvernig Boro dró þetta á langinn og hagaði sér óeðlilega í alla staði og kom í veg fyrir að Ziege gæti skrifað undir strax].

Þetta sýnir svart á hvítu að liverpool.is hafði rétt fyrir sér allan tímann og einstakur heimildarmaður okkar, sem vissi alla þróun mála frá FYRSTU hendi, tryggði að Púllarar á Íslandi vissu fullvel langt á undan öllum öðrum Púllurum að Ziege hafði samþykkt tilboð Liverpool, reyndar langfyrstir allra. Í þessu tilviki sönnuðum við að liverpool.is er skrefinu á undan...

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan