| Sf. Gutt

Þúsund dagar!


Föstudagur seytándi janúar 2020! Í dag eru eitt þúsund dagar liðnir frá því Liverpool tapaði síðast deildarleik á Anfield Road! Magnað afrek!

Liverpool tapaði síðast í deildinni á Anfield 23. apríl 2017 þegar Crystal Palace vann 1:2. Síðan eru liðnir eitt þúsund dagar eftir því sem talnaglöggir segja!


Á þessum eitt þúsund dögum hefur Liverpool leikið 51 deildarleik á Anfield. Liverpool hefur unnið 41 af leikjunum og gert tíu jafntefli. Leikmenn Liverpool hafa skorað 129 mörk í þessum leikjum. Frábær árangur!

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan