| HI

Fabinho og Dejan Lovren, sem hafa átt við meiðsli að stríða undanfarnar vikur, byrja að æfa á fullu í næstu viku. Þeir gætu mögulega náð leiknum gegn Manchester United eftir rúma viku. Jurgen Klopp staðfesti þetta á blaðamannafundi í morgun.
Þá kom jafnframt fram að Xerdan Shaqiri sé farinn að æfa á fullu en hann hefur átt í smávægilegum meiðslum aftan í læri.
Joel Matip er á batavegi af hnémeiðslum sem hafa verið að hrjá hann í töluverðan tíma. Hann tók þátt í fyrsta hluta æfingarinnar í gær en er ekki orðinn nógu góður til að æfa á fullu.
Hins vegar verða hvorki Nabi Keita né James Milner með í leiknum gegn Tottenham á morgun. Þeir glíma báðir við vöðvameiðsl og er óvíst hvenær þeir verða orðnir heilir.
Klopp nefndi einnig að Nathaniel Clyne, sem hefur verið meiddur allt tímabili, sé á góðu róli, en þó er enn nokkuð í að hann verði leikhæfur.
TIL BAKA
Fabinho og Lovren að ná sér

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Allt eða ekkert! -
| Sf. Gutt
Bara stuðningsmenn Liverpool! -
| Sf. Gutt
Af spjöldum sögunnar! -
| Sf. Gutt
Arne Slot kominn með 100 leiki! -
| Sf. Gutt
Dregið í FA bikarnum -
| Mummi
Árshátíð Liverpoolklúbbsins 2026! -
| Sf. Gutt
Ryan Gravenberch gerir nýjan samning! -
| Sf. Gutt
Nýtt félagsmet! -
| Sf. Gutt
Wataru Endo fór í aðgerð -
| Sf. Gutt
Til hamingju!
Fréttageymslan