| Sf. Gutt

Tveir bestir


Liverpool fékk báðar viðurkenningarnar í nóvember sem veittar eru í Úrvalsdeildinni í hverjum mánuði. Besti framkvædastjórinn og besti leikmaðurinn!

Liverpool vann alla deildarleiki sína í mánuðinum og fyrir það var Jürgen Klopp kjörinn Framkvæmdastjóri mánaðarins. Þetta er í þriðja sinn sem Jürgen fær þessa viðurkenningu á leiktíðinni en hann varð líka fyrir valinu í ágúst og september. Þetta er sjötta viðurkenning hans af þessi tagi frá því hann tók við sem framkvæmdastjóri Liverpool. 


Sadio Mané var valinn Leikmaður mánaðarins. Senegalinn skoraði þrjú mörk í nóvember og spilaði frábærlega. Þetta er í þriðja sinn sem Sadio fær þessa viðurkenningu en hann fékk hana áður í ágúst 2017 og mars 2019. Meðfylgjandi mynd var tekin þegar Sadio fékk viðurkenninguna fyrir ágúst 2017. Framherjinn er markahæsti leikmaður Liverpool á leiktíðinni á þessum tímapunkti með 13 mörk. 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan