| Sf. Gutt
TIL BAKA
Tveir farnir heim
Tveir landsliðsmenn Englands eru farnir heim til Liverpool og leika ekki með liðinu í Kósóvó á morgun. Um er ræða þá Jordan Henderson og Joe Gomez.
Jordan Henderson er ekki meiddur en hann fór heim til Liverpool vegna þess að hann er ekki alveg búinn að ná sér af veikindum. Hann spilaði ekki fyrri landsleik Englands á móti Svartfjallalandi af þeim sökum.
Joe Gomez fékk högg á hné þegar hann rakst á félaga sinn á æfingu. Ekkert alvarlegt á að vera á ferðinni og hann ætti að vera orðinn góður eftir nokkra daga.
Vonandi verða þeir félagar báðir orðnir leikfærir. Sömu óskir fylgja þeim Mohamed Salah og Andrew Robertson sem léku ekki með landsliðum sínum vegna meiðsla.

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Eins og draumur! -
| Sf. Gutt
Líkt og ólíkt! -
| Sf. Gutt
Til hamingju! -
| Sf. Gutt
Andrew Robertson hylltur! -
| Sf. Gutt
Joe Gomez orðinn góður! -
| Sf. Gutt
Alvaro Arbeloa á Anfield! -
| Sf. Gutt
Af spjöldum sögunnar! -
| Sf. Gutt
Tilkynnt um nýjan aðalstyrktaraðila! -
| Sf. Gutt
Reyni að gera mitt allra besta alla daga!
Fréttageymslan