| Grétar Magnússon

Ejaria lánaður til Reading

Miðjumaðurinn Ovie Ejaria hefur verið lánaður til Reading sem spila í næst efstu deild. Næsta sumar mun félagið svo ganga frá kaupum á honum.



Ejaria var áður á láni hjá Reading, nánar tiltekið tímabilið 2018-19 og spilaði þá með þeim 16 leiki. Hann kom til Liverpool árið 2014 og í september 2016 spilaði hann sinn fyrsta leik fyrir félagið þegar Jürgen Klopp tefldi honum fram í deildarbikarleik gegn Derby County.

Hann spilaði alls sjö leiki fyrir félagið á því tímabili, þar með talið tvo í úrvalsdeildinni en var svo lánaður til Sunderland og á síðasta tímabili lék hann undir stjórn Steven Gerrard hjá Rangers í Skotlandi.

Hann hefur nú lokið ferli sínum hjá Liverpool því eins og áður sagði spilar hann allt tímabilið á láni hjá Reading og gengur svo til liðs við þá að fullu næsta sumar.

Við þökkum Ejaria fyrir vel unnin störf.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan