| Grétar Magnússon

Leikjaáætlun næsta tímabils

Í dag kynnti enska úrvalsdeildin niðurröðun leikja sinna fyrir komandi tímabil.  Okkar menn byrja heima gegn nýliðum Norwich City á föstudagskvöldi þann 9. ágúst. Verður það jafnframt fyrsti leikur tímabilsins í deildinni.



Eins og venjulega er horft til stórleikjanna og fyrsti nágrannaslagur tímabilsins verður þann 4. desember á Anfield þegar Everton mæta í heimsókn.  Liðin mætast svo á Goodison Park þann 14. mars.

Heimsókn til Manchester United er á dagskrá í október, nánar tiltekið þann 19. og liðin mætast svo á Anfield þann 18. janúar.

Þann 9. nóvember er heimaleikur við Manchester City og þann 4. apríl mætast svo liðin á Etihad leikvanginum.

Um jólin er þétt spilað eins og venjulega og annan dag jóla er útileikur við Leicester City og þann 28. desember koma Úlfarnir í heimsókn.  Tímabilið endar svo á útileik gegn Newcastle United þann 17. maí.

Í fyrsta sinn verður vetrarhlé ef svo má kalla í febrúar en á tveggja vikna tímabili verða aðeins 5 leikir hvora helgi sem gefur liðunum í deildinni viku frí.

Rétt er að benda á að allar dagsetningar geta breyst vegna beinna sjónvarpsútsendinga, á síðasta tímabili voru 29 leikir færðir til vegna þessa hjá liðinu en leikjaniðurröðun Liverpool er eftirfarandi:

Ágúst

Föstudagur 9. – Norwich City (H)
Laugardagur 17. – Southampton (Ú)
Laugardagur 24. – Arsenal (H)
Laugardagur 31. – Burnley (Ú)

September

Laugardagur 14. – Newcastle United (H)
Laugardagur 21. – Chelsea (Ú)
Laugardagur 28. – Sheffield United (Ú)

Október

Laugardagur 5. – Leicester City (H)
Laugardagur 19. – Manchester United (Ú)
Laugardagur 26. –Tottenham Hotspur (H)

Nóvember

Laugardagur 2. – Aston Villa (Ú)
Laugardagur 9. – Manchester City (H)
Laugardagur 23. – Crystal Palace (Ú)
Laugardagur 30. – Brighton and Hove Albion (H)

Desember

Miðvikudagur 4. – Everton (H)
Laugardagur 7. – Bournemouth (Ú)
Laugardagur 14. – Watford (H)
Laugardagur 21. – West Ham United (Ú)
Fimmtudagur 26. – Leicester City (Ú)
Laugardagur 28. – Wolverhampton Wanderers (H)

Janúar

Miðvikudagur 1. – Sheffield United (H)
Laugardagur 11. – Tottenham Hotspur (Ú)
Laugardagur 18. – Manchester United (H)
Þriðjudagur 21. – Wolverhampton Wanderers (Ú)

Febrúar

Laugardagur 1. – Southampton (H)
Laugardagur 8. – Norwich City (Ú) - gæti verið færður til 15. febrúar vegna vetrarfrís.
Laugardagur 22. – West Ham United (H)
Laugardagur 29. – Watford (Ú)

Mars

Laugardagur 7. – Bournemouth (H)
Laugardagur 14. – Everton (Ú)
Laugardagur 21. – Crystal Palace (H)

Apríl

Laugardagur 4. – Manchester City (Ú)
Laugardagur 11. – Aston Villa (H)
Laugardagur 18. – Brighton and Hove Albion (Ú)
Laugardagur 25. – Burnley (H)

Maí

Laugardagur 2. – Arsenal (Ú)
Laugardagur 9. – Chelsea (H)
Sunnudagur 17. – Newcastle United (Ú)

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan