| Áskell Bjarnason

Paul Ince spáir Liverpool titlinum!

Hann segist sannfærður um að tími félagsins sé kominn og liðið hampi Englandsmeistaratitlinum í vor.

"Manchester United er ekki að spila þann bolta sem þeir eru vanir og ég spái því að það verði Liverpool sem standi uppi sem meistarar. Þeir eru með frábært lið og með Hyypia og Henchoz sem öftustu menn eru þeir með alveg ógnvekjandi varnarmúr."

Paul Ince náði ekki þeim árangri á Anfield sem hann vonaðist eftir en segist sannfærður um að liðið hefði unnið titla ef vörnin hefði verið sterkari. "Með fullri virðingu fyrir strákunum sem léku í vörninni á þeim tíma þá verð ég samt að segja, að ef við á þeim tíma hefðum haft þá vörn sem Liverpool hefur í dag, þá hefðum við örugglega unnið titilinn."

"Arsenal eru einnig með mjög sterkt lið og það er góður stígandi í liðinu hjá þeim. Þeir rúlluðu yfir Manchester United hérna um daginn og svo Juventus í vikunni. En eitthvað segir mér að það verði Liverpool sem vinnur deildina."

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan