| Sf. Gutt

Jürgen Klopp á sjúkrahús



Jürgen Klopp fór á sjúkrahús í dag eftir að hafa fundið fyrir lasleika. Þar fór hann í skoðun en var svo útskrifaður. Ekki hefur verið gefið út hvað amaði að Þjóðverjanum en ekki er talið að veikindin hafi verið alvarlegs eðlis. Jürgen gat ekki stjórnað æfingum á Melwood í dag og sáu aðstoðarmenn hans um það. 

Jürgen fór til Suður Afríku í tengslum við góðgerðarstarf á meðan landsleikjahléið stóð yfir. Vonandi verður hann orðinn hress þannig að hann geti stjórnað Liverpool á móti Southampton á Anfield Road á laugardaginn. 



 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan