| Sf. Gutt

Tiago Ilori seldur


Tiago Ilori hefur verið seldur frá Liverpool til Reading sem spilar í næst efstu deild. Portúgalinn náði aldrei að festa sig í sessi hjá Liverpool en hann var keyptur frá Sporting í Lissabon sumarið 2013. Vefsíða Liverpool F.C. hefur ekki staðfest söluna en bæði Liverpool Echo og vefsíða BBC segja söluna frágengna. 


Tiago lék þrjá leiki með Liverpool en hann var talinn einn efnilegasti miðvörður í Evrópu þegar hann var keyptur fyrir 3,5 milljónir stelingspunda. Samkvæmt frétt BBC borgar Reading 3,75 milljónir fyrir Tiago. 


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan