| Sf. Gutt

Tiago á förum?

Samkvæmt frétt í Liverpool Echo er portúgalski miðvörðurinn Tiago Ilori á förum frá Liverpool. Hann er í viðræðum við Reading sem er meðal efstu liða í næst efstu deild.

Hermt er að Liverpool og Reading séu búin að semja um kaupverð. Nái Tiago að semja um kaup og kjör er því ekkert til fyrirstöðu að hann hafi vistaskipti. 

Tiago kom til Liverpool sumarið 2013 en hefur aldrei náð að láta almennilega til sín taka á Englandi. Hann hefur spilað þrjá leiki í aðlliði Liverpool.

  


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan