| Sf. Gutt

Kolo Toure fór til Celtic



Svo því sé haldið til haga þá gekk Kolo Toure til liðs við Glasgow Celtic. Eftir nokkrar vangaveltur varð úr að hann fór frá Liverpool og þar sem hann fékk frjálsa sölu gat hann farið hvert sem hann vildi helst. Það þarf ekki að koma á óvart að Kolo hafi litist vel á Celtic því þar stjórnar nú Brendan Rodgers sem fékk hann til Liverpool. 


Kolo kom til Liverpool frá Manchester City sumarið 2013. Þó svo að hann væri kannski búinn með sitt besta þá lék hann mikilvægt hlutverk hjá Liverpool og þótti vera góð fyrirmynd fyrir unga leikmenn félagsins. Hann lék 71 leik með Liverpool og skoraði einu sinni. 

Hér má lesa allt um feril Kolo Toure á LFChistory.net. 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan