| Sf. Gutt

Liverpool mætir Manchester City!

Liverpool mætir Manchester City í úrslitaleiknum um Deildarbikarinn á Wembley 28. febrúar. Þetta varð ljóst í kvöld þegar Manchester City vann 3:1 sigur á Everton í Manchester. Fyrri leiknum í Liverpool lauk með 2:1 sigri Everton. City vann því samtals 4:3 og kom í veg fyrir Merseybakkarimmu á Wembley.

Liverpool hefur unnið Deildarbikarinn átta sinnum en Manchester City þrívegis. Liðin hafa aldrei áður leitt saman hesta sína í úrslitaleik. 









 
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan