| Heimir Eyvindarson

McAllister og Driscoll líka farnir?

Talið er að Gary McAllister og Sean O´Driscoll, sem Brendan Rodgers réði í þjálfarateymi Liverpool fyrir leiktíðina hafi líka fengið sparkið í gær.  

Þessar fréttir fara nú eins og eldur í sinu um internetið, en hafa ekki enn verið staðfestar. Þá er talið að markmannsþjálfarinn John Achterberg, sem hefur verið á mála hjá félaginu í 6 ár, verði einnig látinn fara. 

Pepijn Lijnders mun í raun vera sá eini af þjálfarateyminu sem er öruggur með að halda starfi sínu. 
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan