| Sf. Gutt

Boðið í Rickie Lambert

Liverpool hefur fengið tilboð í sóknarmanninn Rickie Lambert. Það er því líklegt að enski landsliðsmaðurinn sé á förum hvern næsta dag. 

Samkvæmt frétt Liverpool Echo hefur Liverpool fengið tilboð í Rickie frá West Bromwich Albion upp á þrjár milljónir sterlingspunda. Hann á að hafa fengið leyfi frá forráðamönnum Liverpool til að fara í læknisskoðun og semja um kaup og kjör. 

Rickie fór með í æfingaferð Liverpool til Ástralíu og Asíu en ljóst er að hann er til sölu. Christian Benteke er meira að segja búinn að fá keppnisnúmer hans og verður í treyju númer 9 á komandi leiktíð.


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan