| Sf. Gutt

Sebastian Coates á förum

Samkvæmt frétt Liverpool Echo þá styttist í að Sebastian Coates muni yfirgefa Lierpool. Hann er sagður á leið til Sunderland en hann var þar í láni á liðinni leiktíð.

Sebastian kom til Liverpool sumarið 2011 en hefur ekki náð að fóta sig almennilega á Englandi. Ekki hjálpaði til að hann missti hátt í ár úr vegna slæmra hnémeiðsla. Sebastian var í landshópi Úrúgvæ í Suður Ameríkukeppninni í sumar og spilaði einn leik.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan