| Sf. Gutt

Ykkar skoðun

Nú liggur fyrir hver ykkur, lesendum Liverpool.is, fannst bestur allra leikmanna Rauða hersins í apríl. Sami maður hefur orðið fyrir valinu það sem af er árins og eins síðasta mánaðar síðasta árs! Philippe Coutinho hefur sem sagt einokað þetta kjör fimm mánuði í röð og það með yfirburðum í hvert skipti. Það skiptust á skin og skúrir í apríl en Philippe stóð upp úr þó ekki sé hann hávaxinn. Hann skoraði mark sem kom Liverpool í undanúrslit í F.A. bikanrum. Hann skoraði svo í undanúrslitunum en það dugði því miður ekki og Liverpool féll úr leik. Eftir það gekk ekkert. 

Annar var Belginn Simon Mignolet sem stóð sannarlega fyrir sínu þótt það gengi á ýmsu. Hann hélt þrívegis hreinu og varði oft vel. Slóvakinn Martin Skrtel var þriðji. Hann hefur spilað vel á leiktíðinni og stóð fyrir sínu í apríl eins og hans er von og vísa. 




Philippe Coutinho 60%

Simon Mignolet 21%

Martin Skrtel 9%

Jordan Henderson 4%

Einhver annar 3%

Dejan Lovren 0%

Greidd og gild atkvæði voru 122.

 


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan