| Sf. Gutt

Tveir tilkynna brottför

Leikmenn koma og fara. Allir vita að Steven Gerrard leikur ekki með á næstu leiktíð en tveir aðrir leikmenn Liverpool hafa síðustu daga tilkynnt brottför.


Iago Apas tilkynnti um daginn að hann myndi ganga til liðs við Sevilla fyrir næsta keppnistímabil. Iago kom til Liverpool frá Celta Vigo fyrir tveimur árum en lét lítið að sér kveða. Hann hefur verið í láni hjá Sevilla sem er komið í úrsalitaleikinn í Evrópudeildinni. Hann mun hafa staðið sig vel í lánsdvölinni á Spáni. 


Brad Jones mun hafa þakkað stuðningsmönnum Liverpool fyrir sig á Instagram síðu sinni í dag. Ástralski markmaðurinn kom til Liverpool sumarið 2010 í valdatíð Roy Hodgson og hefur verið varamarkmaður þeirra Jose Reina og Simon Mignolet. Hann var reyndar settur í markið í staðinn fyrir Simon í desember en meiddist í þriðja leik sínum og Simon tók aftur stöðu sína.

  

Eins er talið öruggt að Glen Jonson muni yfirgefa Liverpool. Samningur hans rennur út í sumar og hann fær örugglega ekki nýjan samning eftir þetta. 

Ekkert hefur verið gefið út opinberlega um brottför þessara leikmanna og eins eiga nokkrir og jafnvel nokkuð margir aðrir örugglega eftir að fara. Við sjáum hvað setur. 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan