| Sf. Gutt

Öruggt áframhald hjá unglingunum

Liverpool komst örugglega áfram í Unglingabikarkeppninni í kvöld eftir að hafa skorað fimm mörk á móti Derby County. Liverpool vann 5:2 á heimavelli sínum og heldur áfram í næstu umferð. 

Jerome Sinclair, sem er hér á mynd, kom Liverpool yfir en Charles Vernam jafnaði. Andrew Firth, markmaður Liverpool, varði svo víti áður en Jerome kom Rauðliðum aftur yfir.

Harry Wilson jók forystu Liverpool með glæsilegu skoti beint úr aukaspyrnu. Sergi Canos bætti enn við áður en Harry skoraði úr víti. Charles skoraði annað mark sitt fyrir Derby undir lokin en 5:2 sigur Liverpool var löngu tryggður. 

Liverpool keppir á móti Birmingham City í næstu umferð. 

Liverpool: Firth, Whelan, Hart, Philips (Alexander), Brewitt, Chirivella, Canos (Madger Gomes), Ejaria (Lewis), Sinclair, Wilson og Ojo. Ónotaðir varamenn: Rutter og Maxwell.

Hér eru myndir úr leiknum af Liverpoolfc.com.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan