| Sf. Gutt

Divock valinn efnilegastur Belga

Divock Origi var á dögunum kosinn efnilegastur íþróttamanna í allri Belgíu fyrir líðandi ár. Efnilegasti íþróttamaður Belgíu er valinn um leið og Íþróttamaður ársins. Þann titil hlaut landliðsmarkmaðurinn Thibaut Courtois sem nú leikur með Chelsea en hann varð spænskur meistari með Atletico Madrid og þótti eiga stóran þátt í þeim titli. Knattspyrnumaður hefur ekki áður verið kjörinn Íþróttamaður ársins í belgíu. 

Divock var auðvitað keyptur til Liverpool í sumar en Brendan Rodgers ákvað að Belginn skyldi spila áfram með Lille og vera hjá franska liðinu þessa leiktíð. Margir töldu að rétt væri að fá Divock til Liverpool núna í ljósi þess að ekkert hefur gengið að skora en pilturinn verður um kyrrt í Frakklandi til vors.

 
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan