| Grétar Magnússon

Verðlaun fyrir marsmánuð

Brendan Rodgers var valinn stjóri mars mánaðar og þeir Steven Gerrard og Luis Suarez deila með sér verðlaunum fyrir leikmann mars mánaðar að þessu sinni.


Liðið vann alla sína leiki í mánuðinum, fimm talsins og komust þar með upp fyrir Chelsea og Manchester City í deildinni.  Tveir 0-3 útisigrar á Southampton og Manchester United unnust og þrír leikir unnust svo á 8 dögum þegar Cardiff, Sunderland og Tottenham lágu í valnum.

Það kom því ekki á óvart að Rodgers skyldi hafa verið valinn stjóri marsmánaðar en það var í annað skiptið á tímabilinu sem hann hlýtur þessa nafnbót.

Það kom hinsvegar á óvart að enska Úrvalsdeildin skyldi gefa tveim leikmönnum verðlaunin að þessu sinni, Steven Gerrard og Luis Suarez deila með sér verðlaununum.  Fyrirliðinn fór svo sannarlega fyrir sínum mönnum í mánuðinum.  Han skoraði úr víti gegn Southampton, bætti svo við mörkum úr tveimur vítaspyrnum gegn Manchester United og skoraði svo beint úr aukaspyrnu í leiknum gegn Sunderland.


Luis Suarez hélt auðvitað uppteknum hætti í sínum leik og skoraði hann sex mörk í mánuðinum.  Þrjú komu gegn Cardiff, og svo skoraði hann eitt mark gegn Manchester United, Southampton og Tottenham.

Luis Suarez var hógværðin uppmáluð í viðtali sem tekið var við hann skömmu eftir að þetta var tilkynnt og vill hann meina að Steven Gerrard eigi að hljóta þessa nafnbót aleinn:  ,,Þessi verðlaun eru mikilvægari fyrir Stevie.  Ég ræddi við hann um við ættum að gera við ein verðlaun þar sem við unnum þau báðir en þetta er fyrir hann og allt það sem hann hefur gert á ferlinum."

,,Í síðustu leikjum hefur hann skorað mikilvæg mörk.  Allir leikmenn hafa reynt sitt besta úti á vellinum og maður er með virkilega gott lið þá á maður alltaf séns."

Hann viðurkennir jafnframt að hann hafi aldrei vitað til þess að tveir leikmenn deili með sér þessum verðlaunum en vonast einn dag til þess að geta sagt börnum sínum frá því að hann hafi unnið þessi verðlaun ásamt fyrirliðanum.

,,Síðar á lífsleiðinni mun ég geta sagt börnunum mínum frá því að ég vann einstaklingsverðlaun með öðrum leikmanni.  Ég hef aldrei séð það áður !  Þetta er stórkostlegt fyrir mig og Stevie líka."



TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan