| Sf. Gutt

Ykkar skoðun

Við höfum oft þegar leikmenn Liverpool hafa skorað þrennur og fleiri mörk í sama leik spurt hvaða mark hafi verið flottast. Luis Suarez skoraði glæsilega þrennu á móti Cardiff á dögunum þegar Liverpool vann 3:6 í Wales. Við könnuðum málið með hvaða mark ykkur þótti flottast.

Niðurstaðan varð sú að mark númer tvö þótti bera af. Það var markið sem Luis skoraði eftir að hafa fengið hælsendingu frá Daniel Sturridge. Svo skemmtilega vill til að Luis sagði frá því núna í vikunni að þetta væri eitt uppáhaldsmarkið sitt það sem af er leiktíðar. Myndin hér að ofan er reyndar af marki númer þrjú. 

Númer tvö! 53%

Númer þrjú! 24%

Númer eitt! 23%

Greidd og gild atkvæði voru 150.
 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan