| Mummi

Forsala á árshátíð Liverpoolklúbbsins 2014

Árshátíð Liverpoolklúbbsins á Íslandi verður haldin laugardaginn 22. mars næstkomandi á Spot í Kópavogi.  Um leið og við fögnum 20 ára starfsafmæli klúbbsins gerum við okkur glaðan dag með stórstjörnum frá Englandi.

Þennan dag leika okkar menn útileik við Cardiff City en eins og menn vita hefur Robbie Fowler sterk tengsl til beggja félaga þó tengslin séu auðvitað langsterkust við okkar ástkæra félag.  Það verður líklega margt um manninn á Spot þennan dag.

Forsala miða á árshátíðina hefst mánudagskvöldið 24. febrúar kl. 21:00.

Athugið! Sökum mikillar aðsóknar þá höfum við ákveðið að hver félagi geti að hámarki keypt 4 miða.

Forsalan fer fram á vefnum okkar.
Nánar tiltekið á þessari slóð: http://www.liverpool.is/Club/AnnualFestival.aspx

Klúbbfélagar geta valið um að borga annaðhvort með greiðslukorti eða millifærslu. Þeir sem velja að borga með millifærslu hafa 24 tíma eftir að pöntun hefur átt sér stað til þess að ganga frá millifærslunni. Annars ógildist pöntunin.

Miðaverð í ár er kr. 9.900 fyrir félaga í Liverpoolklúbbnum á Íslandi.

Einhverjar spurningar ? Sendu okkur þá tölvupóst á [email protected]

Hér eru svo nánari upplýsingar um árshátíðina sjálfa:

Dagsetning:  22. mars 2014.
Staður:  Spot í Kópavogi, heimavöllur okkar.
Heiðursgestir:  Robbie Fowler og Darren Farley.
Ræðumaður kvöldsins:  Stefán Pálsson.
Matseðill:  Forréttur - Steikarhlaðborð.

Þetta er viðburður sem hreinlega er ekki hægt að láta fram hjá sér fara !
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan