| Grétar Magnússon

Daniel Pacheco farinn til Spánar

Daniel Pacheco hefur yfirgefið Liverpool fyrir fullt og allt og gengið til liðs við Alcorcon sem spila í spænsku 2. deildinni. Það er óskandi að Pacheco nái að sýna sig og sanna á ný í heimalandinu.


Pacheco kom til félagsins árið 2007 frá Barcelona og þótti mikið efni. Miklar vonir voru bundnar við hann en því miður náði hann aldrei að sýna sig og sanna á Anfield.  Á ferli sínum hjá félaginu var hann lánaður til Rayo Vallecano, Norwich sem þá spiluðu í næst efstu deild og Huesca. Daniel stóð sig mjög vel hjá Norwich og var mjög vinsæll hjá stuðningsmönnum félagsins. Alcorcon hafa byrjað tímabilið vel og eru með fullt hús stiga það sem af er.

Daniel spilaði alls 17 leiki fyrir Liverpool. En á þeim tíma sem hann var á mála hjá Liverpool lék hann fleiri leiki fyrir lánslið sínu. Við óskum Daniel góðs gengis hjá nýja félaginu.

Hér má kynna sér allt það helsta um feril Daniel á LFCHISTORY.NET.


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan