| Heimir Eyvindarson
Svo virðist sem Simon Mignolet muni verða leikmaður Liverpool á næstu dögum. Talið er fullvíst að það þýði að Pepe Reina sé á förum frá félaginu.
The Times, sem oft er nokkuð áreiðanleg heimild þegar kemur að fréttum um Liverpool, segir að Sunderland og Liverpool séu við það að ná samkomulagi um félagaskipti Mignolet. Í frétt blaðsins er gert ráð fyrir að frá viðskiptunum verði gengið nú í vikunni.
Sunderland vill eins og áður hefur verið greint frá hér á síðunni fá 10 milljónir punda fyrir hinn 25 ára Belga, en Mignolet kom til félagsins sumarið 2010 frá belgíska félaginu Sint-Truidense fyrir 2 milljónir.
Það verður að teljast harla ólíklegt að Mignolet sé á leið til Liverpool til þess eins að verða varaskeifa fyrir Pepe Reina sem hefur verið aðalmarkvörður félagsins síðan haustið 2005. Þessi fyrirhuguðu kaup renna því stoðum undir þann orðróm að Reina kunni að vera á leið til Barcelona.
TIL BAKA
Gengið frá kaupum á Simon í vikunni?
Svo virðist sem Simon Mignolet muni verða leikmaður Liverpool á næstu dögum. Talið er fullvíst að það þýði að Pepe Reina sé á förum frá félaginu. The Times, sem oft er nokkuð áreiðanleg heimild þegar kemur að fréttum um Liverpool, segir að Sunderland og Liverpool séu við það að ná samkomulagi um félagaskipti Mignolet. Í frétt blaðsins er gert ráð fyrir að frá viðskiptunum verði gengið nú í vikunni.
Sunderland vill eins og áður hefur verið greint frá hér á síðunni fá 10 milljónir punda fyrir hinn 25 ára Belga, en Mignolet kom til félagsins sumarið 2010 frá belgíska félaginu Sint-Truidense fyrir 2 milljónir.
Það verður að teljast harla ólíklegt að Mignolet sé á leið til Liverpool til þess eins að verða varaskeifa fyrir Pepe Reina sem hefur verið aðalmarkvörður félagsins síðan haustið 2005. Þessi fyrirhuguðu kaup renna því stoðum undir þann orðróm að Reina kunni að vera á leið til Barcelona.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

