| Sf. Gutt

Af Álfukeppninni

Álfukeppnin byrjaði í í Brasilíu í gærkvöldi og hélt áfram í dag. Brasilía vann Japan 3:0 í fyrsta leik keppninnar og skoruðu þeir Neymar, Paulinho og Jo skoruðu fyir heimamenn. Í dag, í sama riðli, vann Ítalía Mexikó 2:1. Andrea Pirlo, sem lék sinn 100. landsleik, og Mario Balotelli skoruðu fyrir Ítali en Javier Hernandez úr víti fyrir Mexíkó.

Heims- og Evrópumeistarar Spánverja mættu til leiks í kvöld og unnu Suður Ameríkumeistara Úrúgvæ 2:1. Sigurinn var mun öruggari en tölurnar segja til um. Pedro og Roberto Soldado komu Spáni í 2:0 í fyrri hálfleik. Fulltrúi Liverpool Luis Suarez skoraði glæsilegt mark beint úr aukspyrnu undir lok leiksins. Hugsanlega heillaði markið einhverja í höfuðborg Spánar! Spánverjar voru miklu betri og Luis sást lítið. Sebastian Coates og Jose Reina voru á bekknum hjá sínum liðum.

Þess má geta að fjórir fyrrum leikmenn Liverpool eru á mótinu. Alberto Aquilani lék síðustu mínúturnar með Ítölum í dag og Alvaro Arbeloa var í byrjunarliði Spánar. Fernando Torres var varamaður. Brasilíumeistarinn Diego Cavalieri var varamarkmaður hjá heimamönnum.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan