| Heimir Eyvindarson
Eftir að hafa spilað í rúm 15 ár í aðalliði Liverpool hefur Jamie Carragher spilað með ótrúlegum fjölda hæfileikaríkra leikmanna. Hér er draumalið meistarans.
Markvörður: Pepe Reina. „Þetta var auðvelt val fyrir mig. Reina er einfaldlega frábær markmaður. Hann er farinn að taka eitt og eitt met af Ray Clemence og við vitum öll hverslags toppmarkmaður hann var. Reina er hávær á vellinum og við höfum tekist á einu sinni eða tvisvar."
Hægri bakvörður: Steve Finnan. „Hér stóð valið milli Finnan og Markus Babbel. Ég valdi Finnan vegna þess að ég hef spilað fleiri leiki með honum. Hann var lykilmaður í bæði skiptin sem við komumst í úrslit í Meistaradeildinni og stöðugleikinn sem hann sýndi meðan hann spilaði undir stjórn Rafa gerir það að verkum að hann fær pláss í liðinu."
Vinstri bakvörður: Glen Johnson. „Ég veit að Glen er hægri bakvörður, en hann hefur spilað helling af leikjum vinstra megin og ávallt staðið sig vel. Ég vel hann fyrst og fremst út af hraðanum, kraftinum og tækninni sem hann býr yfir."
Miðvörður: Sami Hyypiä. „Þetta var auðvelt. Sami er einfaldlega goðsögn. Hann spilaði hér í næstum því tíu ár og það var frábært að hafa hann við hlið sér. Ég hefði gjarnan vilja búa yfir rónni sem einkenndi allt hans spil. Hann lét aldrei slá sig út af laginu á vellinum."
Miðvörður: Daniel Agger. „Daniel er toppleikmaður. Það er mikið rætt um hvað hann er góður með boltann og yfirvegaður í aðgerðum, en hann er líka frábær í loftinu og mjög aggressívur. Hann hefur alla þá kosti sem góður miðvörður þarf að búa yfir."
Miðja: Xabi Alonso. „Xabi er einn af allra bestu leikmönnum sem ég hef spilað með. Hann lá djúpt til baka og sendi gullsendingar út um allan völl. Hann las leikinn ótrúlega vel og var frábær leikstjórnandi. Það er frábært að fylgjast með því hvað honum hefur gengið vel hjá Real Madrid, en hann er alltaf velkominn til baka."
Miðja: Dietmar Hamann. „Það eru margar ástæður fyrir því að ég vel Didi í liðið og þær hafa ekki endilega allar með
fótbolta að gera! Hann hefur spilað úrslitaleik á HM fyrir Þýskaland og hann var lykilmaður þegar við unnum þrennuna 2001, en ég vel hann fyrst og fremst vegna frammistöðunnar í Istanbul. Það var erfitt að velja á milli hans og Mascherano."
Miðja: Steven Gerrard. „Stevie er stjarna. Eftir 10-20 ár á fólk eftir að gorta sig af því að það hafi séð Stevie spila. Ég man eftir fyrsta leiknum hans. Þá sendi hann 40-50 metra sendingu strax í fyrri hálfleik, algerlega óhræddur. Þá vissi ég strax að hann yrði stórstjarna."
Sókn: Robbie Fowler. „Tölfræði Robie segir allt sem segja þarf, en ég held samt að það gleymist stundum hversu frábær fótboltamaður hann var. Hann gat skorað mörk í öllum regnbogans litum, gert skemmtilegar kúnstir og sent gullsendingar. Mér fannst hann líka alltaf frábær í loftinu. Þegar hann kom til baka var hann eins og lítið barn á aðfangadag. það var frábært að upplifa það."
Sókn: Michael Owen. „Ég vel Michael fram yfir Fernando Torres vegna FA-úrslitaleiksins 2001 „The Owen Final". Hann vann þann leik fyrir okkur. Burtséð frá því hvað fólki kann að finnast um Michael þá snýst fótbolti um að vinna leiki. Michael var frábær í því."
Sókn: Luis Suarez. „Steven Gerrard er besti leikmaður sem ég hef spilað með, en eftir því sem ég spila meira með Luis færist hann ofar á listann. Ég held jafnvel að hann sé næstur í röðinni á eftir Stevie. Hann er ótrúlega flinkur og gæti spilað í hvaða liði sem er í heiminum.
TIL BAKA
Draumalið Carra
Eftir að hafa spilað í rúm 15 ár í aðalliði Liverpool hefur Jamie Carragher spilað með ótrúlegum fjölda hæfileikaríkra leikmanna. Hér er draumalið meistarans.Markvörður: Pepe Reina. „Þetta var auðvelt val fyrir mig. Reina er einfaldlega frábær markmaður. Hann er farinn að taka eitt og eitt met af Ray Clemence og við vitum öll hverslags toppmarkmaður hann var. Reina er hávær á vellinum og við höfum tekist á einu sinni eða tvisvar."
Hægri bakvörður: Steve Finnan. „Hér stóð valið milli Finnan og Markus Babbel. Ég valdi Finnan vegna þess að ég hef spilað fleiri leiki með honum. Hann var lykilmaður í bæði skiptin sem við komumst í úrslit í Meistaradeildinni og stöðugleikinn sem hann sýndi meðan hann spilaði undir stjórn Rafa gerir það að verkum að hann fær pláss í liðinu."
Vinstri bakvörður: Glen Johnson. „Ég veit að Glen er hægri bakvörður, en hann hefur spilað helling af leikjum vinstra megin og ávallt staðið sig vel. Ég vel hann fyrst og fremst út af hraðanum, kraftinum og tækninni sem hann býr yfir."
Miðvörður: Sami Hyypiä. „Þetta var auðvelt. Sami er einfaldlega goðsögn. Hann spilaði hér í næstum því tíu ár og það var frábært að hafa hann við hlið sér. Ég hefði gjarnan vilja búa yfir rónni sem einkenndi allt hans spil. Hann lét aldrei slá sig út af laginu á vellinum."
Miðvörður: Daniel Agger. „Daniel er toppleikmaður. Það er mikið rætt um hvað hann er góður með boltann og yfirvegaður í aðgerðum, en hann er líka frábær í loftinu og mjög aggressívur. Hann hefur alla þá kosti sem góður miðvörður þarf að búa yfir."
Miðja: Xabi Alonso. „Xabi er einn af allra bestu leikmönnum sem ég hef spilað með. Hann lá djúpt til baka og sendi gullsendingar út um allan völl. Hann las leikinn ótrúlega vel og var frábær leikstjórnandi. Það er frábært að fylgjast með því hvað honum hefur gengið vel hjá Real Madrid, en hann er alltaf velkominn til baka."
Miðja: Dietmar Hamann. „Það eru margar ástæður fyrir því að ég vel Didi í liðið og þær hafa ekki endilega allar með
fótbolta að gera! Hann hefur spilað úrslitaleik á HM fyrir Þýskaland og hann var lykilmaður þegar við unnum þrennuna 2001, en ég vel hann fyrst og fremst vegna frammistöðunnar í Istanbul. Það var erfitt að velja á milli hans og Mascherano."Miðja: Steven Gerrard. „Stevie er stjarna. Eftir 10-20 ár á fólk eftir að gorta sig af því að það hafi séð Stevie spila. Ég man eftir fyrsta leiknum hans. Þá sendi hann 40-50 metra sendingu strax í fyrri hálfleik, algerlega óhræddur. Þá vissi ég strax að hann yrði stórstjarna."
Sókn: Robbie Fowler. „Tölfræði Robie segir allt sem segja þarf, en ég held samt að það gleymist stundum hversu frábær fótboltamaður hann var. Hann gat skorað mörk í öllum regnbogans litum, gert skemmtilegar kúnstir og sent gullsendingar. Mér fannst hann líka alltaf frábær í loftinu. Þegar hann kom til baka var hann eins og lítið barn á aðfangadag. það var frábært að upplifa það."
Sókn: Michael Owen. „Ég vel Michael fram yfir Fernando Torres vegna FA-úrslitaleiksins 2001 „The Owen Final". Hann vann þann leik fyrir okkur. Burtséð frá því hvað fólki kann að finnast um Michael þá snýst fótbolti um að vinna leiki. Michael var frábær í því."
Sókn: Luis Suarez. „Steven Gerrard er besti leikmaður sem ég hef spilað með, en eftir því sem ég spila meira með Luis færist hann ofar á listann. Ég held jafnvel að hann sé næstur í röðinni á eftir Stevie. Hann er ótrúlega flinkur og gæti spilað í hvaða liði sem er í heiminum.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

