| Sf. Gutt

Carra kvaddur - Gerard Houllier

Á eftir Roy Evans kom Gerard Houllier og hann eins og Roy hélt áfram að velja Jamie Carragher í aðallið Liverpool. Gerard tefldi Jamie oftast fram sem bakverði og í ljós kom að hann gat bæði verið til hægri og vinstri.

,,Stundum voru tækni og hæfileikar hans vanmetnir. Carra er ekki bara með góðan leikskilning. Hann er líka snjall í að spila boltanum. Af því að hann lagði sig ætíð 100 prósent í hvern leik þá gerði hann mistök en hann hélt alltaf áfram á fullu. Hann byrjaði sem vinstri bakvörður hjá mér og bætti sig mikið. Ég sagði honum alltaf að stórir miðverðir byrjuðu venjulega sem vinstri eða hægri bakverðir. Í þessari stöðu náði hann líklega góðum leikskilningi og hann spilaði boltanum líka vel frá sér. Hann byrjaði sem varnarsinnaður miðjurmaður hjá Liverpool en það var alveg sama hvar maður lét hann spila því hann lagði sig alltaf 100 prósent fram og jafnvel rúmlega það. Hann var sannkallaður leiðtogi."

Westerveld var hetja Liverpool í vítaspyrnukeppninni.

,,Hann gefst aldrei upp og það var alveg sama hver staðan var. Alltaf var hann á svæðinu og líklega lagði hann grunn að einhverjum endurkomum. Það er alveg magnað hvað hann leggur mikið á sig. Hann er mikill keppnismaður og hann hafði alltaf gaman af að hafa kapphlaup og vera betri en aðrir á æfingum. Vinnusemi hans er með afbrigðum og eins og þið vitið þá er hann mjög tryggur. Hann er tryggur vinum sínum, fjölskyldu, stuðningsmönnunum, félaginu og slíkt er ekkert mjög algengt nú til dags. Hann færði félaginu bikara en hann lagði líka hjarta sitt í félagið. Carra er sannkallaður Liverpool stríðsmaður!"

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan