| Sf. Gutt

Jamie ætlar ekki að grenja!

Í dag var haldinn sérstakur blaðamannafundur á Anfield þar sem Jamie Carragher sat fyrir svörum. Margt skemmtilegt kom fram á fundinum. Jamie ætlar til dæmis ekki að fara að grenja eftir síðasta leikinn! Hér eru nokkrir punktar frá fundinum.

Að hætta? Fólk er alltaf að spyrja mig. En ég get bara svarað því eftir leikinn. Við viljum bara einbeita okkur að leiknum. Ég hlakka til að útdeila miðunum mínum og vonandi vinna leikinn. Svo get ég horft til baka og gefið ykkur betra svar.

Hver er besta minningin frá Liverpool ferlinum? Istanbúl. Ekkert mun slá út úrslitaleik í Meistaradeildinni. Það hefur ekkert upp á sig að rifja leikinn upp. Við vitum öll hvað gerðist það kvöld. Það verður erfitt að slá þann leik nokkurn tíma út. 

Einhver eftirsjá? Ég vildi að ég hefði unnið deildina. En maður hefur lagt allt í sölurnar og gert eins vel og maður hefur mögulega getað. Þetta snýst um liðsheild. Mismunandi framkvæmdastjóar og þjálfarar hafa hjálpað manni í gegnum tíðina og maður gerir sitt besta. Ég er búinn að standa mig þokkalega. 

Af hverju vannst ekki titillinn? Það er mjög einföld ástæða fyrir því. Við vorum ekki nógu góðir og það á við okkur alla. Það eru engar flóknar ástæður fyrir því eða afsakanir. Önnur lið á viðkomandi leiktíðum voru bara betri en við. Við vorum svona tvisvar nærri því en Manchester United og Arsenal höfðu betur. Ég mun þó ekki missa svefn út af þessu því ég hef verið lánsamur að afreka það sem ég hef náð að gera. Ef maður horfir yfir sviðið þá er alltaf eitthvað ógert. Sama hvað maður hefur gert þá má alltaf afreka meira. Ég er ánægður með hvernig mér hefur vegnað.

Hvaða leikmenn höfðu mest áhrif á þig? Fyrst þegar ég var að koma inn  í liðið var það John Barnes. Hann var fyrirliði liðsins og frábær leikmaður. Einn af þeim allra bestu sem hafa leikið fyrir félagið. Svo þegar ég var búinn að festa mig í sessi þá var það Steven Gerrard. Hann var reyndar yngri en ég en hann fyllir mann kappi og ekki bara yngri leikmennina. Það skiptir ekki máli hvort maður er yngri eða eldri. Maður sér bara hvernig hann spilar og hvað hann hefur gert fyrir okkur. Hann er búinn að vinna nokkra titla fyrir okkur. Hann hefur að minnsta kosti aukið við titlasafn mitt! Ég myndi nefna þessa tvo.

Hvenær fannstu að það var kominn tími til að hætta? Fyrir ári þegar síðustu leiktíð lauk. Ég var inni og út úr liðinu þegar Kenny var með það. Ég fór að hugsa um þetta síðasta sumar en ég átti ár eftir af samningnum og nýr framkvæmdastjóri var að koma. Þá vissi ég að þetta yrði síðasta leiktíðin mín.

Hvers áttu ekki eftir að sakna þegar þú verður hættur að vara atvinnumaður? Þeirrar tilfinningar sem fylgir tapleikjum. En ég á svo sem eftir að fá þá tilfinningu sem stuðningsmaður. Núna fer ég að horfa á leiki og get ekki haft nein áhrif ef Liverpool gengur ekki sem skyldi. En ég á ekki eftir að sakna þessarar tilfinningar. Maður er alltaf hálfdapur í nokkra daga eftir tap.

Framtíð félagsins? Ég er alltaf jákvæður fyrir hönd félagsins. Síðustu árin hefur ekki gengið alveg nógu vel. Liðið hefur ekki verið nógu ofarlega í deildinni og við höfum ekki komist í Meistaradeildina. En það hefur gengið mjög vel núna á seinni hluta leiktíðarinnar undir stjórn nýja framkvæmdastjórans og þess vegna getum við hlakkað til næsta keppnistímabils. 

Ertu sáttur við ferilinn? Ef einhver hefði boðið mér að vera hérna út ferilinn, alla titlana, alla stórleikina sem við höfum spilað og unnið, alla leikvangana sem ég hef spilað á þá hefði ég tekið því fegins hendi. Ég hef verið lánsamur að spila með frábærum leikmönnum, mögnuðum framkvæmdastjórum og fá tækifæri til að upplifa sigra og reyndar stundum töp. Ég hef verið mjög lánsamur.

Tilfinningar eftir leik? Við skulum segja að ég ætla minnsta kosti ekki að fara að grenja!

Hér eru myndir, af Liverpoolfc.com, sem teknar voru á blaðamannafundinum í dag.




TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan