| Sf. Gutt

Carra kvaddur!


Á hvítasunnudegi verður kveðjustund í Musterinu. Musterisriddarinn Jamie Carragher mun leiða herlið sitt, Rauða herinn, til leiks og leika sinn 737. og síðasta leik. Líklega vildi hver einasti stuðningsmaður Liverpool óska sér þess að riddarinn væri ekki að leggja niður vopnin enda hefur hann verið vígfús og baráttuglaður á þessari leiktíð líkt og öllum hinum. Hann er þó búinn að ákveða sig og honum verður ekki haggað heðan af. Það með mun, síðdegis á sunnudaginn, einn helsti merkisberi Liverpool Football Club síðustu árin leggja skóna á hilluna. Jamie Carragher er að hætta hvort sem okkur líkar betur eða verr!  


Við, hér á Liverpool.is, kveðjum þennan mikla stríðsmann. Á næstu dögum verður ein grein á dag birt þar sem samverkamenn Jamie Carragher munu fjalla um þennan mikla foringja. Roy Evans, sem fyrst valdi Jamie í lið Liverpool, verður fyrstur í röðinni.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan