| Sf. Gutt

Fabio Borini kominn í sumarfrí!

Það á ekki af Fabio Borini að ganga. Hann kom illa niður eftir að hafa dottið á móti Swansea í dag og er líklega kominn í sumarfrí!

Það voru um tólf mínútur eftir af leiknum í dag þegar Fabio, sem kom inn á sem varamaður, féll eftir samstuð og lá sárþjáður eftir. Hann gekk sjálfur til búningsherbergja eftir að læknar Liverpool voru búnir að huga að honum en ljóst var að meiðslin voru alvarleg.
 
Eftir leikinn sagði Brendan Rodgers að allt útlit væri á að Fabio hefði farið úr axlarlið og væri sú greining rétt myndi hann ekki leika meira á þessu keppnistímabili. Brendan sagði að Fabio hefði farið úr axlarlið á hinni öxlinni þegar hann var hjá Chelsea en þeir voru þar á sama tíma.  

Þetta er gríðarlegt áfall fyrir Fabio sem fótbrotnaði í september og kom ekki aftur til leiks fyrr en núna í byrjun ársins. Honum hefur svo sem ekki gengið mjög vel eftir að hann kom til Liverpool og aðeins skorað eitt mark í 16 leikjum.

En þessi meiðsli eru áfall því ekki er leikmannahópur Liverpool það stór. En mest er áfallið fyrir Fabio sjálfan og það á sannarlega ekki af honum að ganga.

      
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan