Hvað gerist? - Uppfært í dag og fram á kvöld!
- 23:00. Þá hefur verið lokað fyrir félagaskipti að þessu sinni. Liverpool F.C. var ekki aðili að neinum stórviðskiptum. Einn ungur markmaður fór og annar kom í staðinn. Allt gekk sem sagt eftir eins og Kóngurinn kvað á um í gær. Enginn úr aðalliðshópnum fór á braut og enginn bættist við hópinn. Það var einmitt þetta sem Kóngurinn tilkynnti alþjóð!


- 22:30. Það má reyndar til gamans nefna að tveir fyrrum leikmenn Liverpool eru komnir til Englands á nýjan leik. Franski sóknarmaðurinn Djibril Cisse gekk til liðs við Queen Park Rangers en hann var nú síðast hjá Lazio. Gríski miðvörðurinn Sotirios Kyrgiakos fór frá Liverpool til Wolfsburg í sumar en nú er hann kominn aftur til Englands. Hann verður lánsmaður hjá Sunderland út leiktíðina.

-22:00. Liverpool afneitar formlega að hafa verið að spá í að fá Jermaine Defoe í dag. Þá getum við líklega útilokað að af því verði.
-21.50: Danski markmaðurinn Martin Hansen er á leið frá Liverpool til Viborg í Danmörku. Hann hefur leikið með unglinga- og varaliði Liverpool frá því hann kom frá Bröndby sumarið 2006. Martin lék aldrei með aðalliðinu en var sex sinnum til vara í aðalliðsleikjum.


- 14:00. Ekkert títt í bili. Nokkrar vefsíður telja að Liverpool sé að spá í Jermaine Defoe sóknarmann Tottenham. Hann hefur af og til á síðustu árum verið orðaður við Liverpool og talið er að forráðamenn Tottenham séu tilbúnir að láta hann fara. En þó ekki endilega á þessum tímapunkti.
- 11:00. Haft er eftir Roberto Mancini, framkvæmdastjóra Manchester City, á vefsíðu BBC að hann kannist ekkert við söguna um möguleg skipti á Andy Carroll og Carlos Tevez.
- 7:00. Kenny Dalglish sagði aðspurður við blaðamenn í gær að ekki stæði til að gera neitt í kaupum og sölum. Það kom þó fram fyrr í mánuðinum að eigendur Liverpool eru tilbúnir að leggja fram peninga til leikmannakaupa hafi Kenny hug á að styrkja liðið.

Í gær var tilkynnt að Liverpool hefði keypt ungan markmann frá Wrexham. Sá heitir Danny Ward og þykir hann mjög efnilegur. Ekki getur talist að Danny sé keyptur fyrir aðalliðið enda mun hann æfa með unglingaliðinu. Liverpool festi sér svo annan ungling á dögunum þegar Jordan Ibe kom frá Wycombe. Það eina sem hefur gerist í leikmannamálum aðalliðsmanna er að Danny Wilson var lánaður til Blackpool um áramótin.
Það vantar ekki að nokkrir menn hafa verið orðaðir við Liverpool. Helst er þar að nefna króatíska sóknarmanninn Nikica Jelavic. Hann leikur með Glasgow Rangers og hefur skorað drjúgt í Skotlandi. Fleiri félög hafa sýnt honum áhuga og síðast í gær var Everton nefnt til sögunnar.

-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

