| Sf. Gutt

Yfirlýsing frá Liverpool F.C.

Liverpool Football Club sendi í dag frá sér yfirlýsingu vegna mistaka sem urðu á vefsíðu félagsins. Eftir bikarleik Liverpool og Manchester United var sett myndskeið á Liverpoolfc.tv með venjulegum svipmyndum úr leiknum. Á því sást maður sýna óviðeigandi hegðun sem mátti túlka sem kynþáttaníð. Myndskeiðið kom hugsanlega upp um viðkomandi hegðun en það var samt mjög óheppilegt ef mið er tekið af þeirri umræðu sem hefur verið um þessi mál frá því í haust. Í yfirlýsingunni var beðist afsökununar á því að myndskeiðið skyldi hafa verið notið.

Maður var tekinn til yfirheyrslu hjá lögreglu eftir leikinn eftir að hafa sýnt óviðeigandi hegðun og má eiga von á banni frá Anfield. Það sama má segja um atvik sem átti sér stað í bikarleiknum gegn Oldham. Líklega eiga þeir sem áttu í hlut þá von á banni sé ekki búið að dæma þá í bann nú þegar. Vonandi tekst að veita þessum aðilum viðeigandi refsingu.

Það gekk eitt og annað á hjá áhorfendum á Anfield á laugardaginn. Stuðningsmenn Liverpool létu álit sitt á Patrice Evra í ljós og fylgismenn Manchester United létu Luis Suarez heyra það. Forráðamenn félaganna báðu, fyrir leik, áhorfendur um að sýna stillingu og kannski má segja að hún hafi verið sýnd en sumir gátu hegðað sér betur og lengi má gera betur.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan