| Sf. Gutt
TIL BAKA
Ykkar skoðun
Á dögunum könnuðum við hvaða leikmaður ykkur, lesendum Liverpool.is, þótti standa sig best í desember. Nýr maður komst í efsta sætið og sá hefur sannarlega sett mark sitt á liðið sem hann spilar nú með í annan gang.
Craig Bellamy varð efstur í kjörinu þennan mánuðinn. Þessi magnaði Veilsverji tók þátt í öllum sex leikjum Liverpool í jólamánuðinum og skoraði þrjú mörk. Hann var ekki í byrjunarliðinu í öllum leikjunum en líklega hefðu margir stuðningsmenn Liverpool viljað sjá hann byrja hvern einasta leik. Hann skoraði fyrra markið gegn Aston Villa og svo endaði hann árið með því að skora tvívegis gegn Newcastle og þau mörk gáfu mikilvægan sigur. Craig hefur sannarlega slegið í gegn frá því hann kom til Liverpool í annað sinn og hann er greinilega, þrátt fyrir erfiðar stundir, að gera allt til að njóta seinni dvalar sinnar á Anfield sem mest hann getur. Stuðningsmenn Liverpool njóta líka!
Næstir komu miðverðirnir tveir sem hafa verið frábærir frá því hófu að leika saman í haust. Daninn Daniel Agger varð annar en hann stóð sig vel í desember. Slóvakinn Martin Skrtel var honum skammt að baki og má svo sem segja að erfitt sé að segja hvor hafi verið betri. Martin skoraði reyndar frábært mark gegn Aston Villa en mestu skiptir að þeir hafa náð geysilega vel saman.

Craig Bellamy 65%
Daniel Agger 14%
Martin Skrtel 12%
Luis Suarez 4%
Jordan Henderson 3%
Einhver annar 1%
Greidd og gild atkvæði voru 342.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan