| Sf. Gutt

Tap varaliðsins

Liverpool tapaði illa 2:4 á heimavelli fyrir Blackburn í varaliðsdeildinni í dag. Slæm mistök kostuðu sitt. Blackburn komst yfir með marki Fernandez. Nathan Eccleston jafnaði af stuttu færi áður en Fernandez kom gestunum yfir eftir að markmaður Liverpool missti auðvelda fyrirgjöf fyrir fætur hans. Liverpool jafnaði í næstu sókn þegar Michael Ngoo jafnaði úr víti sem hann sjálfur fékk. Blackburn komst aftur yfir fyrir leikhlé eftir slæm mistök í vörninni. Allt þetta gerðist í fyrri hálfleik.

Liverpool sótti hart í síðari hálfleik og þeir Stephen Sama og Emanuel Mendy skutu báðir í tréverkið. Það eru greinilega ekki bara aðalliðsmenn sem gera það. Blackburn átti síðasta orðið og vann 2:4. Tvö af mörkum Blackburn fengu þeir á silfurfati og þeir færðu sér mistök Liverpool fullkomlega í nyt.



TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan