L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
27.01.2012 23:01
|
Sf. Gutt
Þið getið hjálpað okkur!
Kenny Dalglish veit allt um þann mikla stuðning sem stuðningsmenn Liverpool geta veitt liðinu sínu. Liverpool fékk magnaðan stuðning við að komast í úrslit Deildarbikarsins. Hann segir stuðningsmennina geta lagt mikið af mörkum á morgun þegar Liverpool mætir Manchester United í 4. umferð F.A. bikarkeppninnar.
,,Allir þeir sem bera tilfinningar í garð Liverpool Football Club stóðu sig frábærlega á miðvikudagskvöldið. Stuðningsmennirnir voru stórkostlegir. Þeir héldu leikmönnunum gangandi og öfugt. Hvorir um sig hjálpuðu hinum."
,,Ef litið er á báða leikina þá vorum við án vafa betra liðið og verðskulduðum að fara áfram. Við þurfum að sýna það sama innan vallar sem utan á laugardaginn. Ef við spilum eins og þá og fáum jafn mikinn stuðning eigum við betri möguleika á að komast áfram í F.A. bikarnum."
Það verða örugglega allir á Anfield Road, innan vallar sem utan, tilbúnir í verkefnið í hádeginu á morgun þegar leikurinn hefst. Með samstilltu átaki ætti Liverpool að geta haft betur.
,,Það mikilvægasta fyrir okkur er að liðið sýni samstöðu. Það er alltaf einhver sem er meira í sviðsljósinu en annar en við þurfum ekki að hlaupa á eftir því. Við þurfum bara að einbeita okkur að okkar leik og vera staðfastir í að ná velgengni."
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir