L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
24.01.2012 10:01
|
Sf. Gutt
Fáum stuðningsmennina með!
Það voru fleiri reiðir og sárir en Kenny Dalglish eftir skipbrotið á móti Bolton. Stuðningsmönnum Liverpool leið eins og Kenny og nú hvetur hann leikmenn sína til að fá stuðningsmennina með í bikarrimmunum gegn Manchester liðunum. Fyrsti hluti þeirrar rimmu fer fram á Anfield Road annað kvöld þegar Manchester City kemur í heimsókn í Deildarbikarinum.
,,Við erum með svolítið forskot en við þurfum að mæta í leikinn og berjast. Það er engin vafi á því að leikurinn verður erfiður fyrir okkur. Þeir náðu mögnuðum úrslitum á sunnuaginn á móti Tottenham og héldu efsta sætinu. Ég er því viss um að þeir mæta sterkir til leiksins. Mestu skiptir fyrir okkur að skila okkar verki og eins væri gott að hafa svolitla heppni með okkur."
,,Vonandi verður þetta skemmtilegt fyrir alla. Stuðningsmennirnir munu mæta og við fáum örugglega góðan stuðning frá þeim en við verðum að gera eitthvað til að fá þá í lið með okkur. Við getum ekki alltaf reiknað með því að þeir lyfti okkur og stundum þurfum við að hafa frumkvæðið að því."
,,Við getum ekki tekið stuðningsmenn okkar og hvatningu þeirra sem sjálfsagðan hlut. Við verðum að hafa fyrir hlutunum. Þeir verða að sjá að við leggjum okkur alla fram á miðvikudaginn til að ná fram úrslitum fyrir félagið."
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Sjá leikskýrslu
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir