L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
23.01.2012 23:01
|
Sf. Gutt
Af leikmannamálum
Það er nokkuð liðið á janúar og þar með styttist í að lokað verði fyrir félagaskipti. Ennþá sem komið er hefur lítið gerst í herbúðum Liverpool.
Enginn hefur verið keyptur og enginn seldur. Það eina sem hefur gerist er að Danny Wilson var lánaður til Blackpool. Hann er að spila með liðinu og mun hafa staðið fyrir sínu. Reyndar er rétt að geta þess að Steven Gerrard framlengdi samning sinn við Liverpool á dögunum.
Það vantar ekki að nokkrir menn hafa verið orðaðir við Liverpool. Helst er þar að nefna króatíska sóknarmanninn Nikica Jelavic. Hann leikur með Glasgow Rangers og hefur skorað drjúgt í Skotlandi og sem stendur hefur hann skorað fjórtán deildarmörk. Faðir hans mun hafa látið hafa eftir sér að sonurinn vilji spila með Liverpool.
Í staðarblaðinu Echo segir í dag að forráðamenn Liverpool hafi neitað því að þeir séu í kapphlaupi við önnur félög um að kaupa Nikica. Um helgina sagði Ally McCoist framkvæmdastjóri Rangers að hann vissi bara um áhuga frá West Ham United á Króatanum.
Echo greinir líka frá því í dag að Liverpool hafi verið boðið að taka Serbann Milos Krasic að sér. Sá er snöggur útherji og er á mála hjá Juventus. Hann mun þó ekki eiga framtíð fyrir sér hjá ítalska liðinu og hafa því ráðgjafar hans kynnt hann nokkrum félögum í Evrópu.
Það er ekki gott að segja hvort eitthvað verði um viðskipti hjá Liverpool til loka mánaðar. Frá því Kenny Dalglish tók við Liverpool hafa öll leikmannamál farið mjög leynt og lítið vitað fyrr en félagið hefur sent frá sér tilkynningar. Það er þó ljóst að Kenny og ráðgjafar hans hugsa sitt ráð þessa dagana og ekki síst eftir útreiðiina sem Liverpool fékk í Bolton um helgina.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir