| HI
Eins og flestir stuðningsmenn Liverpool vita hefur verið barist í rúma tvo áratugi fyrir því að leitt verði í ljós hvað í raun gerðist í hinu hræðilega Hillsboroughslysi árið 1989. Þá létu 96 stuðningsmenn lífið á Hillsborough í Sheffield, þar sem leikur Liverpool og Nottingham Forrest í undanúrslitum bikarkeppninnar fór fram. Þann 15. apríl næstkomandi verða 23 ár liðin frá þessum atburði og af því tilefni ætla sex stuðningsmenn, þar af einn sem lenti sjálfur í slysinu, að hlaupa frá Hillsborough til Anfield, alls ríflega 120 km leið, á þremur dögum. Hlaupinu lýkur á Anfield 14. apríl, en þann sama dag leikur Liverpool við Fulham í ensku úrvaldsdeildinni.
Áheitasöfnun er hafin vegna hlaupsins en ágóðinn rennur til beggja Hillsboroughhópanna. Þeir eru Hillsborough Family Support Group, sem hefur það hlutverk að styðja við fjölskyldur þeirra sem misstu ástvin eða ástvini í slysinu, og síðan Hillsborough Justice Campaign, sem berst fyrir því að sannleikurinn komi í ljós um orsakir slyssins og að þeir sem gerðu mistök verði látnir axla ábyrgð á þeim.
Hægt er að heita á hlauparana sex sem ætla að hlaupa þessa löngu leið á heimasíðu atburðarins, http://hillsborough-anfieldrun.co.uk og viljum við hvetja þá sem eru aflögufærir til að styrkja þetta góða málefni. Á þessari síðu er einnig að finna allar upplýsingar um þennan viðburð.
TIL BAKA
Hlaupið til styrktar Hillsborough
Eins og flestir stuðningsmenn Liverpool vita hefur verið barist í rúma tvo áratugi fyrir því að leitt verði í ljós hvað í raun gerðist í hinu hræðilega Hillsboroughslysi árið 1989. Þá létu 96 stuðningsmenn lífið á Hillsborough í Sheffield, þar sem leikur Liverpool og Nottingham Forrest í undanúrslitum bikarkeppninnar fór fram. Þann 15. apríl næstkomandi verða 23 ár liðin frá þessum atburði og af því tilefni ætla sex stuðningsmenn, þar af einn sem lenti sjálfur í slysinu, að hlaupa frá Hillsborough til Anfield, alls ríflega 120 km leið, á þremur dögum. Hlaupinu lýkur á Anfield 14. apríl, en þann sama dag leikur Liverpool við Fulham í ensku úrvaldsdeildinni. Áheitasöfnun er hafin vegna hlaupsins en ágóðinn rennur til beggja Hillsboroughhópanna. Þeir eru Hillsborough Family Support Group, sem hefur það hlutverk að styðja við fjölskyldur þeirra sem misstu ástvin eða ástvini í slysinu, og síðan Hillsborough Justice Campaign, sem berst fyrir því að sannleikurinn komi í ljós um orsakir slyssins og að þeir sem gerðu mistök verði látnir axla ábyrgð á þeim.
Hægt er að heita á hlauparana sex sem ætla að hlaupa þessa löngu leið á heimasíðu atburðarins, http://hillsborough-anfieldrun.co.uk og viljum við hvetja þá sem eru aflögufærir til að styrkja þetta góða málefni. Á þessari síðu er einnig að finna allar upplýsingar um þennan viðburð.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

