L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
26.08.2011 17:08
|
Sf. Gutt
Spurning vikunnar
Þá er komið að spurningu vikunnar. Eins og annað venjulegt fólk nota knattspyrnumenn alls konar nútímavefmiðla. Sumir hafa nú til dæmis lent í vandræðum á Twitter. En af hverju skrá menn sig á Twitter? Brasilíumaður svarar því.
Af hverju ákvaðst þú að skrá þig á Twitter?
Ég ákvað að skrá mig á Twitter til að geta haft meira samband við stuðningsmenn og það fólk sem kann að meta mig. Mér finnst að maður eigi stundum að gefa þessu fólki tækifæri til að hafa samband því stuðningur þess er mjög mikilvægur.
Maður þarf þó að kunna að nota svona miðla því sumir reyna að notfæra sér allt sem maður lætur frá sér gegn manni. Maður þarf að sýna varkárni og það er auðvitað ekki hægt að svara öllum spurningum. Ég reyni þó alltaf að svara nokkrum spurningum og ég hef gaman af að láta fólk vita hvað ég er að brasa.
Til fróðleiks: Lucas Leiva er af ítölskum ættum og mun hafa tvöfalt ríkisfang. Hann ákvað samt að halda sig við brasilíska landsliðið.
Spurning vikunnar birtist í LFC vikublaði Liverpool.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir