| Sf. Gutt

Andlegur styrkur skilar manni langt!

Í gær voru fimmtán ár liðinn frá því Jamie Carragher lék sinn fyrsta af þeim 682 leikjum sem hann hefur spilað fyrir hönd Liverpool. En hvernig fór hann að því að ná svona langt? Jamie segir að staðfesta og eldmóður hafi skilað honum langt. Hér koma góð ráð fyrir unga knattspyrnuiðkendur.
 
,,Ég taldi að ég væri nógu góður til að spila í Úrvalsdeildinni en líklega varð ég svo að leggja enn meira á mig til að geta spilað með Liverpool. Ég hugsa að staðfesta, eldmóður og ákveðni hafi skilað því að ég hef getað spilað meðal þeirra bestu."

Á Jamie Carragher hefur sannast að það er ekki nóg að vera efnilegur. Fullt af mjög efnilegum strákum og stúlkum ná aldrei jafn langt og margir telja að þau eigi að geta ef mið er tekið af hæfileikum þeirra. Jamie var efnilegur á sínum tíma, stóð undir því og náði langt. Hann telur andlegan styrk geta skipt sköpum. 

,,Það var fullt af álíka góðum leikmönnum sem spiluðu með enska undir 16 ára landsliðinu á sínum tíma. Sumir, hvernig sem á því stóð, enduðu svo í utandeildarliðum eða þá í liðum í neðri deildunum. Maður klórar sér stundum í hausnum og veltir því fyrir sér af hverju því við vorum allir álíka efnilegir. Kannski er andlegi þátturinn ein ástæðan fyrir því að ákveðnir leikmenn ná aðeins lengra en aðrir."

Víst er að Jamie Carragher býr yfir miklum andlegum styrk og sá styrkur hefur skilað honum mjög langt. Hann er fullkomin fyrirmynd hvað það varðar fyrir unga pilta jafnt sem stúlkur sem vilja ná lengra en aðrir!

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan