| Heimir Eyvindarson
Í dag eru fimmtán ár síðan Jamie Carragher spilaði sinn fyrsta leik fyrir Liverpool.
Það var 8. janúar 1997 sem Jamie Carragher kom í fyrsta sinn inn á í liði Liverpool, í leik gegn Middlesborough í Deildabikarnum. Liverpool tapaði leiknum 2:1. Þremur dögum síðar kom hann inn á í leik gegn West Ham United í Úrvalsdeildinni. Þeim leik lauk með markalausu jafntefli.
Roy Evans, þáverandi framkvæmdastjóri Liverpool, hlýtur að hafa verið ánægður með frumraun Carra því viku síðar var hann í fyrsta sinn í byrjunarliði Liverpool. Það var í leik gegn Aston Villa í deildinni. Liverpool sigraði leikinn 3:0 og Carra kórónaði góðan leik með því að skora ágætt skallamark. Nokkuð sem gerist ekki á hverjum degi!
Jamie hefur á löngum ferli aðeins skorað fimm mörk fyrir Liverpool. Hann hefur að vísu komið boltanum í netið aðeins oftar, en það förum við ekki nánar út í á degi sem þessum.
Jamie Carragher, sem er 33 ára, er nú næst leikjahæsti leikmaður félagsins frá upphafi, með 682 leiki. Aðeins Ian Callaghan hefur leikið fleiri leiki.
Á farsælum ferli hefur hann unnið Deildabikarinn (2001 og 2003), F.A. bikarinn (2001 og 2006), Evrópukeppni félagsliða (2001) og Meistaradeildina (2005). Að auki hefur hann unnið Góðgerðarskjöldinn (2001 og 2006) og Stóbikar Evrópu (2001 og 2005). Eina dollan sem vantar í safnið hjá þessum dygga þjóni félagsins er Englandsmeistaratitillinn en vonandi skilar hann sér áður en yfir lýkur.
Hér má sjá feril Carra í myndum á opinberi heimasíðu Liverpool.
TIL BAKA
Fimmtán ár frá fyrsta leik Jamie Carragher
Í dag eru fimmtán ár síðan Jamie Carragher spilaði sinn fyrsta leik fyrir Liverpool. Það var 8. janúar 1997 sem Jamie Carragher kom í fyrsta sinn inn á í liði Liverpool, í leik gegn Middlesborough í Deildabikarnum. Liverpool tapaði leiknum 2:1. Þremur dögum síðar kom hann inn á í leik gegn West Ham United í Úrvalsdeildinni. Þeim leik lauk með markalausu jafntefli.
Roy Evans, þáverandi framkvæmdastjóri Liverpool, hlýtur að hafa verið ánægður með frumraun Carra því viku síðar var hann í fyrsta sinn í byrjunarliði Liverpool. Það var í leik gegn Aston Villa í deildinni. Liverpool sigraði leikinn 3:0 og Carra kórónaði góðan leik með því að skora ágætt skallamark. Nokkuð sem gerist ekki á hverjum degi!
Jamie hefur á löngum ferli aðeins skorað fimm mörk fyrir Liverpool. Hann hefur að vísu komið boltanum í netið aðeins oftar, en það förum við ekki nánar út í á degi sem þessum.
Jamie Carragher, sem er 33 ára, er nú næst leikjahæsti leikmaður félagsins frá upphafi, með 682 leiki. Aðeins Ian Callaghan hefur leikið fleiri leiki.
Á farsælum ferli hefur hann unnið Deildabikarinn (2001 og 2003), F.A. bikarinn (2001 og 2006), Evrópukeppni félagsliða (2001) og Meistaradeildina (2005). Að auki hefur hann unnið Góðgerðarskjöldinn (2001 og 2006) og Stóbikar Evrópu (2001 og 2005). Eina dollan sem vantar í safnið hjá þessum dygga þjóni félagsins er Englandsmeistaratitillinn en vonandi skilar hann sér áður en yfir lýkur.
Hér má sjá feril Carra í myndum á opinberi heimasíðu Liverpool.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

