| Sf. Gutt

Liverpool á eftir Darren Bent?

Nú um áramótin opnaðist fyrir félagaskipti knattspyrnumanna og um leið hefst tími tilgátna og sögusagna. Margir telja að Liverpool vanti markheppinn sóknarmann og nú fyrir áramótin hófu fjölmiðlar að bendla Darren Bent við Liverpool.
 
Darren leikur nú með Aston Villa en þangað fór hann fyrir ári þegar hann yfirgaf Sunderland sem fékk 24 milljónir sterlingspunda fyrir kappann. Darren hefur þó ekki leikið jafn vel á þessari leiktíð og margar þær síðustu og aðeins skorað sjö mörk.

Hann hefur síðustu ár verið með helstu markaskorurum í ensku deildinni og skorað drjúgt fyrir Ipswich, Charlton, Tottenham, Sunderland og nú Aston Villa. Forráðamenn Liverpool hafa sýnt honum áhuga fyrir þær sakir oftar en nú. Það er að segja ef rétt er að Liverpool hafi einhvern áhuga núna á þessum tímapunkti. 

 
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan