| Sf. Gutt

Styttist í stórsigur!

Leikmönnum Liverpool hefur ekki gengið nógu vel að skora það sem af er þessu keppnistímabili. Í fimmtán deildarleikjum hefur Liverpool aðeins skorað átján sinnum. Glen Johnson, sem hefur skorað eitt mark það sem af er sparktíðar, telur að það styttist þó í stórsigur Liverpool.
 
,,Ég hef sterklega á tilfinningunni að það styttist mjög í stórsigur. Við erum að nálgast hann og við fengum nógu mörg færi á móti Q.P.R. til að vinna öruggan sigur. Á öðrum degi, með aðeins meiri heppni, gætu áttatíu prósent færi orðið að mörkum og staðan allt í einu orðið 6:0. Þetta skiptir svo sem ekki máli svo framarlega að við vinnum en þetta fer að ganga upp ef marka má hvernig við höfum verið að spila."

Glen Johnson skoraði sigurmark Liverpool í deildarleiknum á móti Chelsea á Stamford Bridge. Það er eina mark hans á leiktíðinni. Hann telur mikilvægt að sem flestir í liðinu skori mörk.

,,Það hefur enginn áhyggjur af því hver skorar ef við erum á sigurbraut en það er betra fyrir liðið að sem flestir skori. Það er ekki gott að þurfa að treysta alltaf á sömu mennina í markaskorun."

Nú er að sjá hvort Glen hefur rétt fyrir sér. Það eru margir leikir framundan um jól og áramót og því mikilvægt að skora sem mest. Það hlýtur að fara að koma að því að flóðgátir opnist. 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan