| Grétar Magnússon
Jonjo Shelvey var útnefndur besti ungi leikmaður næst efstu deildar Englands fyrir nóvembermánuð. Shelvey stóð sig frábærlega hjá Blackpool þegar hann var á láni þar.
Alls spilaði Shelvey 10 leiki fyrir Blackpool og skoraði 6 mörk, þar af þrennu í 5-0 sigri á Leeds United. Eftir að alvarleiki meiðsla Lucasar voru ljós var Shelvey kallaður aftur til baka úr láni og hann berst nú fyrir því að fá sæti í liðinu. Kom hann til að mynda inná sem varamaður í síðasta leik gegn Q.P.R.
Shelvey hefur spilað með U16, U17, U19 og U21 landsliðum Englands og ljóst er að hann er mikið efni.
Shelvey sagði af þessu tilefni: ,,Þegar mér var sagt að ég hefði verið valinn besti ungi leikmaður nóvembermánaðar hringdi ég beint í mömmu, pabba og kærustuna. Þetta er mikill heiður fyrir mig og fjölskyldu mína, verðlaunagripurinn mun njóta sín vel á arinhillunni hjá mér."
,,Þegar maður fær ekki tækifæri hjá Liverpool getur maður orðið leiður, stundum þarf maður að fara annað til að spila leiki. Að hafa farið á láni til annars félags hjálpaði sjálfstraustinu hjá mér og ég held ég sé að sýna það á æfingum hér núna."
,,Blackpool er frábært félag og sóknarbolti þeirra hentaði mér mjög vel. Í raun má því segja að þetta hafi verið auðvelt fyrir mig. Ian Holloway (stjóri Blackpool) sagði mér bara að spila minn bolta - hann setti allt sitt traust á mig."
Holloway sagði þetta þegar hann frétti af verðlaunaafhendingunni: ,,Hann var frábær - hann var svolítið pirraður þegar hann kom hingað fyrst. Ég held að hann sé fyrst og fremst skemmtikraftur, hann hefur mikla hæfileika og mun ekki tapa þeim. Vonandi fær hann tækifæri til að láta ljós sitt skína því hann hentaði okkur mjög vel. Þessi strákur er það góður að hann gat spilað hvar sem var í okkar kerfi og hann lét til sín taka."
TIL BAKA
Jonjo Shelvey verðlaunaður
Jonjo Shelvey var útnefndur besti ungi leikmaður næst efstu deildar Englands fyrir nóvembermánuð. Shelvey stóð sig frábærlega hjá Blackpool þegar hann var á láni þar.Alls spilaði Shelvey 10 leiki fyrir Blackpool og skoraði 6 mörk, þar af þrennu í 5-0 sigri á Leeds United. Eftir að alvarleiki meiðsla Lucasar voru ljós var Shelvey kallaður aftur til baka úr láni og hann berst nú fyrir því að fá sæti í liðinu. Kom hann til að mynda inná sem varamaður í síðasta leik gegn Q.P.R.
Shelvey hefur spilað með U16, U17, U19 og U21 landsliðum Englands og ljóst er að hann er mikið efni.
Shelvey sagði af þessu tilefni: ,,Þegar mér var sagt að ég hefði verið valinn besti ungi leikmaður nóvembermánaðar hringdi ég beint í mömmu, pabba og kærustuna. Þetta er mikill heiður fyrir mig og fjölskyldu mína, verðlaunagripurinn mun njóta sín vel á arinhillunni hjá mér."
,,Þegar maður fær ekki tækifæri hjá Liverpool getur maður orðið leiður, stundum þarf maður að fara annað til að spila leiki. Að hafa farið á láni til annars félags hjálpaði sjálfstraustinu hjá mér og ég held ég sé að sýna það á æfingum hér núna."
,,Blackpool er frábært félag og sóknarbolti þeirra hentaði mér mjög vel. Í raun má því segja að þetta hafi verið auðvelt fyrir mig. Ian Holloway (stjóri Blackpool) sagði mér bara að spila minn bolta - hann setti allt sitt traust á mig."
Holloway sagði þetta þegar hann frétti af verðlaunaafhendingunni: ,,Hann var frábær - hann var svolítið pirraður þegar hann kom hingað fyrst. Ég held að hann sé fyrst og fremst skemmtikraftur, hann hefur mikla hæfileika og mun ekki tapa þeim. Vonandi fær hann tækifæri til að láta ljós sitt skína því hann hentaði okkur mjög vel. Þessi strákur er það góður að hann gat spilað hvar sem var í okkar kerfi og hann lét til sín taka."
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

