| Sf. Gutt

Kemur David Villa?

Af og til síðustu vikur hafa verið sögusagnir í enskum fjölmiðlum þess efnis að Liverpool hafi hug á að lokka David Villa til Englands. Markaskortur hefur verið hjá Liverpool það sem af er leiktíðar og snúast sögusagnirnar um að forráðamenn ætli sér að bæta úr því í janúar. 

David leikur auðvitað með Barcelona en hefur ekki verið fastamaður í liðinu upp á síðkastið. Reyndar hefur hann eitthvað verið meiddur. Það er ekki gott að segja hvort eitthvað sé hæft í þessum sögusögnum en trúlega eru minni líkur að að Spánverji vilji koma til Liverpool en á valdatíma Rafael Benítez. Þá var reyndar vitað að áhugi var hjá Liverpool á David.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan