| Sf. Gutt
Jose Reina náði merkum áfanga í leiknum á móti Swansea City á laugardaginn. Hann hélt þá marki sínu hreinu í 150. sinn frá því hann kom til Liverpool. Aðeins tveir aðrir markmenn hafa náð þeim sama áfanga hjá félaginu.
Sem fyrr segir þá hélt Jose markinu hreinu í 150. sinn en leikurinn var sá 323. sem hann hefur spilað með Liverpool. Aðeins goðsagnirnar Ray Clemence og Bruce Grobbelaar hafa náð þessum áfanga á undan Spánverjanum.
Jose þurfti að taka á honum stóra sinum gegn Swansea til að ná tölunni 150. Eigi sjaldnar en fjórum sinnum þurfti hann að verja þannig að orð var á gerandi. Eitt skiptið sést á meðfylgjandi mynd.
Að auki lék Jose Reina sinn 163. deildarleik í röð. Aðeins Phil Neal, Chris Lawler, Ray Clemence og Bruce Grobbelaar hafa leikið fleiri deildarleiki í röð fyrir Liverpool.
Það má segja að það sé að bera í bakkafullan læk að bera lof á Jose Reina en hann er einfaldlega einn af allra bestu markmönnum í heiminum öllum. Líklega þarf ekki meira að segja!
TIL BAKA
Jose Reina nær merkum áfanga!
Jose Reina náði merkum áfanga í leiknum á móti Swansea City á laugardaginn. Hann hélt þá marki sínu hreinu í 150. sinn frá því hann kom til Liverpool. Aðeins tveir aðrir markmenn hafa náð þeim sama áfanga hjá félaginu.Sem fyrr segir þá hélt Jose markinu hreinu í 150. sinn en leikurinn var sá 323. sem hann hefur spilað með Liverpool. Aðeins goðsagnirnar Ray Clemence og Bruce Grobbelaar hafa náð þessum áfanga á undan Spánverjanum.
Jose þurfti að taka á honum stóra sinum gegn Swansea til að ná tölunni 150. Eigi sjaldnar en fjórum sinnum þurfti hann að verja þannig að orð var á gerandi. Eitt skiptið sést á meðfylgjandi mynd.
Að auki lék Jose Reina sinn 163. deildarleik í röð. Aðeins Phil Neal, Chris Lawler, Ray Clemence og Bruce Grobbelaar hafa leikið fleiri deildarleiki í röð fyrir Liverpool.
Það má segja að það sé að bera í bakkafullan læk að bera lof á Jose Reina en hann er einfaldlega einn af allra bestu markmönnum í heiminum öllum. Líklega þarf ekki meira að segja!
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

