| Sf. Gutt
Swansea kemur í dag í heimsókn frá Wales. Veilsverjinn Craig Bellamy segir að Liverpool verði að vinna sigur í leiknum! Ekki bara vegna þess að hann er frá Cardiff, og það er ekki mikill vinskapur þar á milli, heldur líka vegna þess að Swansea er nýliði í deildinni og Liverpool mistókst að vinna aðra nýliða á dögunum. Norwich náði 1:1 jafntefli á Anfield í leik sem Craig skoraði í. Craig vill sigur að þessu sinni.
,,Það er mikilvægt að halda áfram að spila án taps. Ég er ekki að sýna Swansea vanvirðingu en við verðum að vinna svona leiki ef við ætlum að komast í fjögur efstu sætin. "
,,Við misstigum okkar á móti Norwich en miðað við hvernig við spiluðum og hversu mörg færi við fengum þá hefðum við unnið öruggan sigur. Norwich á hrós skilið því þeir gáfust ekki upp og við náðum ekki að ganga frá þeim. Ég held þó að við vinnum Swansea ef við fáum jafn mörg færi gegn þeim."
Craig Bellamy hefur ekki spilað eins mikið og hann vildi eftir að hann kom til Liverpool en hann hefur þó náð að skora tvö mörk. Hugsanlega fær hann tækifæri að bæta við mörkum í dag. Craig er frá Wales eins og allir vita en hann fylgir ekki Swansea að málum. Hann er frá Cardiff og mun því ekki draga af sér fái hann tækifæri gegn Svönunum!
TIL BAKA
Verðum að vinna!
Swansea kemur í dag í heimsókn frá Wales. Veilsverjinn Craig Bellamy segir að Liverpool verði að vinna sigur í leiknum! Ekki bara vegna þess að hann er frá Cardiff, og það er ekki mikill vinskapur þar á milli, heldur líka vegna þess að Swansea er nýliði í deildinni og Liverpool mistókst að vinna aðra nýliða á dögunum. Norwich náði 1:1 jafntefli á Anfield í leik sem Craig skoraði í. Craig vill sigur að þessu sinni. ,,Það er mikilvægt að halda áfram að spila án taps. Ég er ekki að sýna Swansea vanvirðingu en við verðum að vinna svona leiki ef við ætlum að komast í fjögur efstu sætin. "
,,Við misstigum okkar á móti Norwich en miðað við hvernig við spiluðum og hversu mörg færi við fengum þá hefðum við unnið öruggan sigur. Norwich á hrós skilið því þeir gáfust ekki upp og við náðum ekki að ganga frá þeim. Ég held þó að við vinnum Swansea ef við fáum jafn mörg færi gegn þeim."
Craig Bellamy hefur ekki spilað eins mikið og hann vildi eftir að hann kom til Liverpool en hann hefur þó náð að skora tvö mörk. Hugsanlega fær hann tækifæri að bæta við mörkum í dag. Craig er frá Wales eins og allir vita en hann fylgir ekki Swansea að málum. Hann er frá Cardiff og mun því ekki draga af sér fái hann tækifæri gegn Svönunum!
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

