| Sf. Gutt

Steven og Jamie að braggast

Þeir fóstbræður Steven Gerrard og Jamie Carragher eru að braggast og líklega er ekki langt í að þeir geti farið á stjá á nýjan leik. Kenny Dalglish sagði á blaðamannafundi í dag að meðferðin sem Steven hefði farið í, vegna sýkingarinnar sem hann fékk á dögunum, hefði gengið vel og hann væri á góðum batavegi. Steven mun þó ekki spila með Liverpool á móti Swansea á laugardaginn.

Jamie tognaði á ökkla og fór af velli í hálfleik í Deildarbikarleiknum gegn Stoke um daginn. Kenny sagði að ekki væri útilokað að hann gæti spilað gegn Swansea. Ákvörðun um það yrði tekin eftir skoðun en engin áhætta yrði tekin með að láta Jamie spila ef hann væri ekki búinn að ná sér fullkomlega.
 
Kenny Dalglish notaði tækifærið og hældi þeim piltum aðeins. ,,Það er miklu betra fyrir okkur hjá knattspyrnufélaginu að hafa þessa tvo leikfæra. Þeir hafa þjónað félaginu frábærlega og eiga eftir að gera það áfram."

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan